MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Kynningar

Tæknilæsi fyrir 60 ára og eldri

Eftir Ingólfur Stefánsson·
Untitled-design-1
kaffid.is

Akureyrarbær býður upp á ókeypis námskeið fyrir fólk 60 ára og eldri þar sem farið verður yfir grunnatriði í notkun tölva og snjalltækja. Markmiðið er að efla tæknilæsi og auka öryggi við daglega notkun.

Meðal annars verður farið yfir helstu stillingar og notkun tölva og snjalltækja, rafræn skilríki og samskipti, heimabanka og aðra rafræna þjónustu, netverslun og örugg kaup á netinu. Einnig verður fjallað um netöryggi og gagnleg ráð fyrir daglega notkun.

Námskeiðið fer fram í Sölku í Víðilundi fimmtudaginn 1. október kl. 13 til 14.30. Snæbjörn Sigurðsson kennir námskeiðið. Engin skráning er nauðsynleg og þátttaka er ókeypis.

Í framhaldinu verður boðið upp á styttri námskeið fyrir minni hópa þar sem þátttakendur geta komið með eigin tölvur og snjalltæki og fengið aðstoð og leiðsögn við notkun þeirra.

Námskeiðið er liður í Aðgerðaráætlun fyrir eldra fólk á Akureyri, þar sem meðal annars er gert ráð fyrir fræðslu um notkun tölva og snjalltækja. Tæknin er sífellt stærri hluti af daglegu lífi og mikilvægt að allir hafi tækifæri til að öðlast þá grunnfærni sem þarf til að nýta sér rafræna þjónustu á öruggan hátt.

Tengdar greinar

Uppfært: 1. október 2026