Vegna vinnu við aðveitustöðina á Rangárvöllum verður rafmagnslaust í Eyjafirði frá kl. 15:00 til kl. 15:15 á morgun, fimmtudaginn 8. janúar. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Straumlaust verður víða í Hörgársveit og Eyjafjarðarsveit, en ekki á Akureyri.
Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð Rarik í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof


COMMENTS