Styrktarbingó fyrir almannaheillafélagið Vonarbrú verður haldið sunnudaginn 1. mars klukkan 14 í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Hægt verður að kaupa:
Eitt spjald á 1500 krónur
Þrjú spjöld á 3500 krónur
Fimm spjöld á 5000 krónur
Glæsilegir vinningar sem verða nánar auglýstir síðar á Facebook-síðu viðburðarins, fylgist með hér.
Vonarbrú er almannahagsmunafélag sem leggur áherslu á að styðja við og bæta hag barnafjölskyldna á Gaza í Palestínu. Á liðnu ári hefur félagið styrkt u.þ.b. 70 ungar barnafjölskyldur sem glíma við að halda sér á lífi og þrauka í kjölfar þess efnahagslega og félagslega hruns sem hefur átt sér stað meðal fólksins á Gaza.


COMMENTS