Sunna Hlín Jóhannesdóttir hefur ákveðið að gefa aftur kost á sér til að leiða lista Framsóknar á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum í vor. Hún segist finna að enn séu málefni sem á henni brenna og að hún vilji beita sér fyrir af meiri krafti.
„Ég vil áfram leggja sérstaka áherslu á húsnæðismál, málefni barna og ungmenna, vaxandi hóp eldri borgara og síðast en ekki síst atvinnumál. Við þurfum að horfa markvisst til framtíðar og byggja upp samkeppnishæft samfélag með fjölbreyttum atvinnutækifærum, góðum skólum, góðri aðstöðu til útivistar og íþróttaiðkunar og skapa skemmtilegt mannlíf,“ segir Sunna í tilkynningu sem hún sendi frá sér í dag.
„Eins þurfum við sem kjörnir fulltrúar landsbyggðanna að berjast fyrir okkar, standa vörð um öfluga heilbrigðisþjónustu, öruggar samgöngur, uppbyggingu skóla og hjúkrunarheimila, millilandaflug og jöfn tækifæri í atvinnulífi. Ég hlakka til samtals við bæjarbúa um framtíð Akureyrarbæjar. Það eru spennandi tímar framundan.“


COMMENTS