Súperman tilnefnt sem lag ársins og XV sem plata ársins

Súperman tilnefnt sem lag ársins og XV sem plata ársins

Tilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2026 voru kynntar í gær. Lagið Súperman eftir Pétur Már Guðmundsson, Saint Pete, er tilnefnt sem lag ársins í flokki hipphopptónlistar og platan XV eftir Eyþór Inga Jónsson er tilnefnd sem plata ársins í flokki Sígildrar og samtímatónlistar.

Lag Rakelar Sigurðardóttur, always, er tilnefnt sem lag ársins í flokknum Önnur tónlist. Rakel hlaut þrjár tilnefningar. Sjá nánar: Rakel tilnefnd til þriggja verðlauna á Íslensku tónlistarverðlaununum

Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu 18. mars í beinni útsendingu á RÚV. Allar tilnefningar má sjá á vef Íslensku tónlistarverðlaunanna með því að smella hér.

COMMENTS