Svartar bækur leigja Laxdalshús næstu fjögur ár

Svartar bækur leigja Laxdalshús næstu fjögur ár

Bæjarráð Akureyrar samþykkti á fundi sínum í vikunni að fela forstöðumanni atvinnu og menningarmála að ganga til samninga við Svartar bækur varðandi leigu á Laxdalshúsi til næstu fjögurra ára. Akureyrarbær auglýsti húsið til leigu í byrjun febrúar.

Húsið, sem stendur við Hafnarstræti 11, var byggt árið 1795 og er elsta hús bæjarins. Tiboð bárust frá Saga Travel, Svörtum bókum og Serenu Pedrana.

Húsið var reist sem íbúðarhús en hefur á undanförnum árum m.a. gegnt hlutverki veitingastaðar, skrifstofuhúsnæðis, sýningarrýmis og æfingaraðstöðu fyrir kammerkór. Stærð hússins er 134 m2 og við það stendur 18 m2 bakhús. Húsið er friðað og fyrirhuguð starfsemi mun þurfa að taka mið af því.

COMMENTS