MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Telma lét drauminn rætast og gaf út sína fyrstu bók

Eftir Ingólfur Stefánsson·
telma-axels
Telma er höfundur bókarinnar Undir Gullregninu· kaffid.is

Telma Axelsdóttir lét draum sinn rætast á árinu og gaf út sína fyrstu bók, smásöguna Undir Gullregninu. Telma er hvorki læs né skrifandi og fékk því aðstoð frá frænku sinni, rithöfundinum Söndru Clausen við skrif á bókinni.

„Saman sköpuðum við þessa sögu sem er mín hugmynd í bland við það sem mamma mín, Maggý, hjálpaði mér við og Sandra botnaði þar sem hún er vön skrifum,“ segir Telma.

„Það var svo gaman að láta drauminn rætast. Mig hefur lengi dreymt um að gefa út mína fyrstu bók. Ég vissi alltaf að ég gæti þetta og með hjálp fólks sem styrkti okkur á Karolina Fund sýndum við fram á að enginn draumur er of stór ef maður fer á eftir honum. Þetta sýnir vonandi öðrum að það er í lagi að láta sér dreyma og þá sé ekkert ómögulegt.“

Telma vinnur í Rauða húsinu og hefur unun af sveit og dýrum. Hún hefur verið í sumardvöl í sveit næstum árlega, og einnig verið mörg sumur í Hrísey. Undir Gullregninu er rómantísk smásaga sem fjallar um hana Telmu og sögusviðið er íslenska sveitin. Freydís Kristjánsdóttir sá um að myndskreyta kápu bókarinnar en Telma sjálf teiknar einnig inn í bókina.

Bókin er gefin út af Bókaútgáfunni Dröfn í samstarfi við Prentmet. Sandra Clausen, meðhöfundur og stofnandi bókaútgáfunnar Dröfn segir að viðbrögðin við bókinni hafi verið mögnuð og að hún sé nær uppseld hjá bókaútgáfunni. Aðeins nokkur fáanleg eintök séu eftir í Pennanum.

Tengdar greinar

Uppfært: 17. október 2026