Þemadagar í Giljaskóla

Þemadagar í Giljaskóla

Þemadagar fóru fram í Giljaskóla á Akureyri dagana 17. og 18. október.  Réttindaráð Giljaskóla ákvað að þemað í ár yrði „göldrum fram góðmennsku“ með Harry Potter ívafi.

Allir árgangar skólans  unnu saman á 16 stöðvum víðs vegar um skólann að fjölbreyttum og skemmtilegum verkefnum eins og sjá má í myndbandinu hér að neðan. Í dag var svo foreldrum boðið að koma og skoða vel skreyttan skólann.

Áberandi var hversu vel góðmennskan og gleðin skein úr hverju andliti bæði hjá nemendum og starfsfólki skólans.

COMMENTS