Þemadagar og stórafmæli í Giljaskóla – Myndir

Þemadagar og stórafmæli í Giljaskóla – Myndir

Þessa viku hefur mikið gengið á í Giljaskóla, á miðvikudag og fimmtudag voru þemadagar þar sem unnið var með land, sjó og himin og fjöldi verka skapaður auk fræðslu. Í dag, föstudaginn 17. október, var svo 30 ára afmæli skólans fagnað með nemendum, foreldrum, starfsfólki og góðum gestum.

Afrakstur þemadaga var sýndur í dag á afmælisdeginum og iðaði skólinn af lífi og gleði. Mikil sköpun átti sér stað sem sást um alla ganga skólans.

Á afmælisdaginn tók skólinn einnig í notkun klifurvegg sem hefur lengi verið á óskalistanum. Veggurinn verður góð viðbót við möguleika nemenda í skólanum á hreyfingu og gleði.

„Starfsfólk og nemendur Giljaskóla þakka öllum gestum fyrir komuna og nemendum og starfsfólki fyrir vinnuna í vikunni,“ segir í tilkynningu frá skólanum.

Hér að neðan má sjá myndir frá þemadögum Giljaskóla

COMMENTS