Þór Akureyri er grasrótarfélag KSÍ 2025

Þór Akureyri er grasrótarfélag KSÍ 2025

Þór Akureyri hefur hlotið nafnbótina grasrótarfélag KSÍ árið 2025 vegna Pollamótsins. Grasrótarverðlaunum KSÍ er skipt upp í þrjá flokka: Grasrótarverkefni ársins, Grasrótarfélag ársins og Grasrótarpersóna ársins.

Pollamótið var fyrst haldið árið 1988. Síðustu ár hafa um 650-750 keppendur mætt á mótið, árið 2023 mættu 850. Af um 650 keppendum í fyrra voru 250 þátttakendur konur og mikil aukning hefur verið í þátttöku kvenna síðustu ár. 

Verðlaunin verða veitt á ársþingi KSÍ sem fer fram á Egilsstöðum þann 28. febrúar.

COMMENTS