Íþróttafélagið Þór fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ fyrir aðalstjórn og sex deildir á verðlaunahátíð félagsins Við áramót sem var haldin þriðjudaginn 6. janúar síðastliðinn. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Deildirnar sem hlutu viðurkenningu eru handknattleiksdeild, hnefaleikadeild, knattspyrnudeild, körfuknattleiksdeild, píludeild og taekwondodeild. Það var Heimir Örn Árnason úr framkvæmdastjórn ÍSÍ sem afhenti fulltrúum félagsins viðurkenningarnar.
„Í rekstrarsamningi Íþróttafélagsins Þórs og Akureyrarbæjar er það skilyrði að félagið uppfylli kröfur um að vera Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Ég er þeirrar skoðunar að þetta sé atriði sem fleiri sveitarfélög ættu að hafa inni í samningum við íþróttafélög. Það myndi þrýsta fleiri íþróttafélögum í að fara í þá vinnu að gerast Fyrirmyndarfélög og í þeirri vinnu lærir þú mjög mikið um starfið og hvað við þurfum og viljum uppfylla í okkar starfi. Það er mjög gleðilegt fyrir íþróttafélagið Þór að fá þessa viðurkenningu og erum við þakklát fyrir hana“, sagði Reimar Helgason framkvæmdastjóri Þórs af þessu tilefni.


COMMENTS