Þórhallur vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Þórhallur vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Þórhallur Jónsson, vara-bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri gefur kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokks fyrir bæjarstjórnarkosningar í maí næstkomandi.

Í tilkynningu sem Þórhallur sendi frá sér í dag segir hann að honum hafi fundist hann knúinn til að gefa kost á sér til að leiða listann í kjölfar trúnaðarbrestar innan flokksins á Akureyri. Áður hafði Þórhallur gefið út að hann myndi sækjast eftir 2. til 3. sæti á lista flokksins.

 „Eftir að formaður fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, sagði af sér formennsku fulltrúaráðs til að gefa kost á sér til að leiða listann og myndaði bandalag við Heimi, fráfarandi oddvita, um að hann tæki annað sætið á lista og eftirléti sér oddvitasætið, án nokkurs samtals við fulltrúaráð né stjórnir Sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, sé ég mig knúinn til að gefa kost á mér til að leiða lista flokksins í komandi kosningum,“ segir Þórhallur.

Heimir Árnason, núverandi oddviti ætlar ekki lengur að gefa kost á sér til að leiða listann, en Þórhallur segir að ákveðið hefði verið að fara í röðunarfyrirkomulag þegar útlit var fyrir að hann væri einn í kjöri til oddvita. Þórhallur segir þetta hafa verið megin-forsendu þess að ekki var farið í prófkjör á Akureyri.

„Aðgengi fráfarandi formanns fulltrúaráðs að kjörskrá umfram aðra frambjóðendur, setur trúverðugleika röðunarfyrirkomulags og kosningar þar um í uppnám. Með framboði mínu skora ég einnig á flokkinn að halda stefnu sinni og hefðum, fara í prófkjör og leyfa sjálfstæðisfólki á Akureyri að velja sér oddvita með lýðræðið í fyrirrúmi,“ segir Þórhallur.

COMMENTS