Karlalið Þórs í handbolta tryggði sé í gær áframhaldandi veru í Olís deildinni, efstu deild karla í handbolta, með sigri á Aftureldingu.
Þórsarar unnu leikinn, sem var spilaður í Mosfellsbæ, 26-24. Þórsarar eru nú í 9. sæti deildarinnar með 13 stig og eiga enn séns á að ná 8. sætinu sem tryggir sæti í úrslitakeppninni. Til þess þurfa þeir að sigra nágranna sína í KA á fimmtudaginn.
KA menn töpuðu fyrir FH í Hafnarfirði í gær og sitja fyrir nágrannaslaginn á fimmtudaginn í 5. sæti deildarinnar með 26 stig, einu stigi á eftir ÍBV í fjórða sætinu.
Það verður því nóg undir þegar Akureyrarliðin mætast á fimmtudaginn.


COMMENTS