Þriðjudagsfyrirlestur – Hvalir og eftirminnileg sýningargerðMynd: Daníel Starrason

Þriðjudagsfyrirlestur – Hvalir og eftirminnileg sýningargerð

Í dag, þriðjudaginn 10. mars klukkan 16:15 mun Eva Björk Káradóttir, safnstjóri Hvalasafnsins á Húsavík, leiða þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri. 

Eva Björk hefur í átta ár leitt uppbyggingu Hvalasafnsins og mótað sýningar sem tengja saman vísindi, menningu og náttúru – allt með hvali í forgrunni.

Í þriðjudagsfyrirlestri sem fer fram í Listasafninu á Akureyri klukkan 16:15 mun Eva Björk veita innsýn í heim sýningagerðar í sérhæfðu safni. Hún fjallar um hugmyndavinnu, ákvarðanatöku og skapandi lausnir í uppbyggingu sýninga þar sem saga, vísindi og menning hvala móta efnistök og framsetningu.

Í fyrirlestrinum verður einnig sjónum beint að listrænni nálgun í Hvalasafninu, með aðkomu myndlistarmanna við miðlun vísinda, lista og menningar í sýningagerðinni. Auk þess mun Eva Björk fjalla um sköpun og þróun sýningarrýmis fyrir myndlist innan safnsins og velta upp spurningunni: Hvers konar myndlist á heima í hvalasafni?

Aðgangur er ókeypis.

COMMENTS