Þrjár hljómsveitir frá Akureyri keppa á Wacken Metal Battle

Þrjár hljómsveitir frá Akureyri keppa á Wacken Metal Battle

Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin 25. apríl á tónleikastaðnum Iðnó í Reykjavík. Þrjár hljómsveitir frá Akureyri taka þátt í keppninni í ár.

Hljómsveitirnar Sólför, Show Guilt og SÓT frá Akureyri eru allar meðal keppenda í úrslitunum. Alls keppa sjö sveitir á úrslitakvöldinu. Alþjóðlega dómnefnd skipuð fólki úr metal-tónlistarbransanum fór yfir umsóknir og valdi þær sjö hljómsveitir sem stóðu upp úr.

Fjölskipuð alþjóðleg dómnefnd ásamt áhorfendum mun svo velja eina af þeim til þess að spila fyrir Íslands hönd á stærstu þungarokkshátíð heims Wacken Open Air í sumar.

Þar spilar sú hjómsveit sem stendur uppi sem sigurvegari fyrir mörg þúsund manns og tekur þar með þátt í lokakeppni Wacken Metal Battle ásamt 30 öðrum þjóðum þar sem ansi rausnarleg verðlaun bíða efstu 5 sveitanna.

Nánari upplýsingar á  www.facebook.com/wmbiceland.Official og www.instagram.com/wmbiceland.Official/


COMMENTS