Thule verður að Lite

Thule, eitt þekktasta bjórvörumerki landsins, gengur nú í gegnum breytingar með skýrari stefnu og nýrri staðfærslu. Bjórinn, sem hefur verið bruggaður á Akureyri frá árinu 1966, verður nú 4,4% Lite bjór.
Fyrsta herferð Thule árið var bönnuð hvað gerist núna?
Ný staðfærsla Thule byggir á einföldum skilaboðum: Thule er alltaf léttur. Alltaf Lite.
Þetta þýðir þó ekki að Thule sé að kynna nýja undirtegund sem heitir „Thule Lite“. Þvert á móti verður Thule áfram Thule. Léttleikinn er ekki aukalína eða viðbót við vörumerkið, heldur hluti af sjálfsmynd þess. Með nýju stefnunni verður Lite ekki sérstök lína innan Thule, heldur verður öll Thule vörulínan byggð á Lite-hugmyndinni.
„Við vildum gera Thule meira Thule. Hann hefur alltaf verið léttur í anda; kaldur, ferskur, einfaldur og íslenskur í gegn. Nú erum við að skerpa á því og færa vöruna nær því sem neytendur eru að leita að í dag,“ segir Atli Sigurður Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi.
Thule er bruggaður með jafnvægi að leiðarljósi; léttur, ferskur og auðvelt að njóta. Hann er glútenfrír, með minna af kolvetnum og færri kaloríur en gengur og gerist, án þess að fórna bragði eða upplifun. Með 4,4% styrkleika og áherslu á ískalt, hreint og aðgengilegt bragð mætir Thule breyttum áherslum neytenda sem leita í auknum mæli að léttari valkostum.
Íslenskur húmor að leiðarljósi
Endurvakning Thule verður einnig sýnileg í nýrri auglýsingaherferð undir slagorðinu Alltaf Léttur. Alltaf Lite. Þar verða íslenskur húmor, léttleiki og samverustundir í forgrunni.
Thule hefur í gegnum tíðina verið þekkt fyrir skemmtilegar og eftirminnilegar auglýsingar og með nýju herferðinni sækir vörumerkið aftur í þann sterka arf. Handrit auglýsinganna eru skrifuð af Hugleiki Dagssyni og byggja á séríslenskum augnablikum sem flestir Íslendingar þekkja; stemningunni, litla samfélaginu og húmornum sem fylgir því að búa á Íslandi. Auglýsingarnar Thule hafa þó ekki alltaf fallið í kramið hjá öllum.
„Það tók markaðsteymi Thule nokkur ár að finna rétta tóninn þegar bjórinn var nýkominn á markað árið 1966. Eitt skemmtilegasta dæmið er frá 1969 þegar ein fyrsta sjónvarpsauglýsing Thule vakti gríðarlega athygli. Þar bað fúlskeggjaður kúreki, á leið til aftöku, um einn ískaldan Thule sem sína hinstu ósk. Það þótti fullmikið fyrir sinn tíma, auglýsingin olli talsverðu uppnámi og var bönnuð eftir aðeins fáeinar sýningar í sjónvarpi. Ég vona að við séum búin að finna rétta tóninn fyrir íslenskt samfélag í dag“ Segir Atli og brosir.
„Thule á að vera bjórinn sem passar inn í íslenskt samfélag. Hann er ekki að reyna að vera flókinn eða hátíðlegur. Hann er bara ískaldur, ferskur og léttur eins og góður Lite bjór á að vera. Og auðvitað á Thule að geta hlegið að sjálfum sér og Íslandi í leiðinni,“ segir Atli.
Nýr Thule verður fáanlegur á næstu dögum og vikum á börum, veitingastöðum, netverslunum og í Vínbúðinni.
Tengdar greinar
Uppfært: 6. september 2026










