Um 60 manns mættu á samráðsfund um framtíð tæknináms

Um 60 manns mættu á samráðsfund um framtíð tæknináms

Um 60 manns mættu á vel heppnaðan Súpufund atvinnulífsins síðastliðinn þriðjudag. Fundurinn fór fram í DriftEA við Ráðhústorg á Akureyri, þar sem rætt var um framtíð tæknináms á Norðausturlandi. Í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar segir að líflegt samtal hafi skapast um leiðir til að efla námið og hvernig styðja megi við framtíðaruppbyggingu greinarinnar.

Það voru Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykjavík sem, í samstarfi við Akureyrarbæ og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra (SSNE), stóðu að fundinum.

Ásgeir Ásgeirsson, deildarforseti tæknifræðideildar HR, og Ólafur Jónsson, verkefnisstjóri við Háskólann á Akureyri, kynntu námið og Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor HA, og Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, leiddu umræðu um framtíð og þróun námsins.

„Fundurinn er hluti af áframhaldandi vinnu sem hófst á fyrirtækjaþingi sem Akureyrarbær og SSNE stóðu fyrir í Hofi í febrúar síðastliðnum. Þar kom skýrt fram vilji þátttakenda til að hittast oftar, efla tengsl og bera saman bækur sínar. Súpufundurinn var svar við þeirri áskorun og liður í áframhaldandi samráði og samstarfi í þágu öflugs atvinnulífs á svæðinu,“ segir í tilkynningu á Akureyri.is.

COMMENTS