„Undir gólfplötunni opnast annar heimur þar sem ríkir friður og jafnvægi“

„Undir gólfplötunni opnast annar heimur þar sem ríkir friður og jafnvægi“

Jóna Sigurlaug Friðriksdóttir, verkefnastjóri reksturs fasteigna HA, er næsti viðmælandi í samstarfi Kaffið.is og Háskólans á Akureyri þar sem við fáum að kynnast lífinu í skólanum. 


Við hvað starfar þú hjá HA og hvað ertu búin að vera lengi í starfi?

Ég er verkefnastjóri reksturs fasteigna og hóf störf við háskólann haustið 2021, nánar tiltekið föstudaginn 13. ágúst.

Hvernig finnst þér háskólalífið á Akureyri?

Ég kann virkilega vel að meta háskólalífið. Það er gott að koma í vinnuna á morgnanna og finna ekkert annað en hlýju og glaðlegt viðmót frá samstarfsfólkinu. Rekstur fasteigna ber ábyrgð á aðbúnaði, hollustuháttum og öryggi starfsfólks og stúdenta í þeim 12.000 fermetrum sem háskólinn hefur til umráða svo verkefnin séu fjölbreytt og óþrjótandi. Ég er svo heppin að í starfi mínu er ég í miklum samskiptum við starfsfólk og stúdenta, enginn dagur er eins og aldrei hægt að vita hvað sá næsti ber í skauti sér.

Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú yrðir stór?

Já, það var nú ekkert smáræði. Ég ætlaði að verða stjörnufræðingur og fornleifafræðingur. Ég hafði bæði gaman af því að grafa í jörðina til að leita að einhverju forvitnilegu og líka að liggja á bakinu úti á stjörnubjörtum kvöldum, skoða stjörnurnar og læra að þekkja stjörnumerkin.

Hvað finnst þér gera HA sérstakan?

Staðsetning háskólans hér á norðurhjara gefur honum sérstöðu, til dæmis hvað varðar mál Norðurheimskautsins, enda segir á heimasíðunni okkar unak.is að Akureyri sé „skilgreind sem miðstöð íslenskrar þekkingar og alþjóðlegrar sérfræðiþekkingar á málefnum norðurslóða.“

Hér er líka hægt að stunda nám sem ekki er boðið upp á í öðrum háskólum á landinu. Svo er það auðvitað heimilisblærinn og persónuleg samskipti. Hjarta skólans er að mínu mati Kaffi Borg – þar sem öll hittast og spjalla.

Skemmtilegasta minning þín í HA?

Ég á þúsundir góðra minninga frá því ég var í námi hér í fjölmiðlafræði en það sem kannski stendur upp úr er að búa til efni fyrir ljósvakamiðla. Það var líka magnað þegar ég fékk tækifæri til að fara á tvö námskeið í Reykjavík á námstímanum, annað í rannsóknarblaðamennsku og hitt í gerð sjónvarpsþátta.

Besta minning mín úr starfinu er líklega fyrsta brautskráningarhátíðin. Allt var svo hátíðlegt og formlegt en líka spennandi og skemmtilegt. Kandídatar, gestir og starfsfólk í sparifötunum og sínu besta skapi. Maður hreinlega fann fyrir gleðinni og stoltinu hjá kandídötum og fjölskyldum þeirra og gat ekki annað en samglaðst öllu sem einu.

Uppáhaldsstaðurinn í HA?

Kjallararnir. Undir gólfplötunni opnast annar heimur þar sem ríkir friður og jafnvægi; þessi þægilega verkstæðisstemning. Kveikt er á útvarpi og menn eru að setja saman húsgögn, lagfæra hluti eða taka til ýmislegt sem starfsfólki vanhagar um.

Mér líður líka afskaplega vel með mínu samstarfsfólki í E-húsi. Þar er fjölbreytt og fullkomin blanda af fólki sem saman myndar góðan og traustan kjarna. Og svo auðvitað Kaffi Borg – þangað er alltaf gott að koma.

Hvaða þrjú orð dettur þér í hug þegar þú hugsar um HA?

Það eru orð sem öll enda á „kerfi“: Hússtjórnarkerfi, aðgangsstýringarkerfi, innbrota- og brunakerfi.

COMMENTS