„Uppistandið valdi mig, ég er bara að sinna kallinu“

„Uppistandið valdi mig, ég er bara að sinna kallinu“

Föstudaginn 13. mars kl. 20:00 mun fara fram uppistand á Lyst í Lystigarðinum þar sem aðgangur er ókeypis. Uppistandið ber heitið Á þetta að vera fyndið? Þau sem fram koma eru Arnór Daði Gunnarsson, Baddi Ingimarsson, Snæfríður Ingadóttir og Svava Björk Ólafsdóttir. Í tilefni viðburðarins tók Kaffið þau tali og fékk að fræðast meira um þau, uppistandsferil þeirra og fyrirmyndir.

Er einhver uppistandsbransi á Akureyri?

Hópurinn er nokkuð sammála um að uppistandssenan á Akureyri sé eiginlega ekki til, enn sem komið er. „Hún er hreinlega ekki til,“ segir Baddi Ingimarsson, 28 ára rafeindavirki, sem þó hefur mikla reynslu af því að skemmta á sviði, þó ekki í þessu hefðbundna formi.

Arnór Daði Gunnarsson, 32 ára píparanemi, er sá eini sem kemur með reynslu úr „Open Mic“ senunni í Reykjavík, þar sem hann steig reglulega á svið áður en hann flutti heim fyrir þremur árum. „Það er ekkert alltof mikið að gera hérna,“ segir hann, en vonast til að þetta kvöld sé byrjunin á einhverju meira.

Svava Björk Ólafsdóttir, nýsköpunarstjóri við Háskólann á Akureyri og englafjárfestir, tekur undir þetta: „Við erum hér að setja tóninn og vonandi búa til bransann!“

Fyrir suma í hópnum er þetta hvatvísisákvörðun eða fyrir aðra hluti af stærra skipulagi. Svava Björk, sem er þekkt fyrir mikla reynslu úr atvinnulífinu og fyrirlestrahald, segir uppistand hafa verið á markmiðalistanum sínum í nokkur ár.

„Ég er mjög markmiðadrifin kona. Ætli þetta hafi ekki ratað á listann þegar ég var komin með 3-4 góðar sögur sem vöktu lukku,“ segir Svava og bætir við að ef vel gangi sé þetta mögulega það fyrsta af mörgum, annars það síðasta!

Snæfríður Ingadóttir, blaðamaður og rithöfundur, nálgast þetta á sinn hátt: „Ég hef mikla reynslu af því að standa upp úr sófanum og stundum er það fyndið. Uppistandið valdi mig, ég er bara að sinna kallinu,“ segir Snæfríður og bætir við að eiginmaðurinn eigi raunar alltaf besta grínið.

Fyrirmyndirnar

Þegar kemur að fyrirmyndum nefna bæði Arnór og Baddi goðsögnina Norm Macdonald sem lést fyrir rúmum fjórum árum en var þekktur fyrir einstaklega óhefðbundið grín, Baddi bætir síðan við Greipi, sem hefur verið vinsæll uppistandari ásamt því að reglulega setja inn efni á samfélagsmiðla sem vekja mikla kátínu. Svava Björk horfir til Sögu Garðarsdóttur: „Hún er ALLTAF fyndin, þarf varla að opna munninn!“

Það er því von léttu og skemmtilegu kvöldi og gaman verður að sjá hópinn stíga á svið….og eflaust verður kvöldið sprenghlægilegt.

COMMENTS