Amtsbókasafnið á Akureyri hefur auglýst eftir tilboðum í rekstur veitingastofu á 1. hæð safnsins frá 1. október 2025 til eins árs, með möguleika á þriggja ára framlengingu til viðbótar (til 31. september 2029).
Veitingareksturinn er sjálfstæð eining en mikilvægur hluti af góðri heildarmynd Amtsbókasafnsins. Tilboðsgjafi skal leggja fram greinagóða lýsingu á því hvernig vöru- og þjónustuframboð hann hefur í huga að hafa á staðnum, ásamt tilboði í mánaðarlegt leiguverð aðstöðunnar.
Tilboðum skal skilað rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en 27. ágúst 2025 kl. 13.
Bjóðendum er boðið í vettvangsskoðun 13. ágúst nk. kl. 13, mæting er í anddyri Amtsbókasafns.
Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!
Nánari upplýsingar um framkvæmd útboðsins eða útboðsgögn veitir Hrafnhildur Sigurðardóttir (hrafnhildursig@akureyri.is) á fjársýslusviði Akureyrarbæjar.
Frétt af vef Amtsbókasafnsins á Akureyri.


COMMENTS