MAK
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Valborg nýr deildarstjóri geðdeildar SAk

Eftir Ingólfur Stefánsson·

Valborg Lúðvíksdóttir tekur formlega við starfi deildarstjóra geðdeildar Sjúkrahússins á Akureyri 1. janúar 2027. Hún tekur við af Bernard Hendrik Gerritsma, sem hefur starfað á sjúkrahúsinu í þrjátíu ár. Valborg hefur gegnt starfinu í afleysingum frá 1. febrúar 2026. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef SAk í dag.

Valborg hóf störf sem hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku SAk vorið 2010 og tók til starfa á geðdeild í október sama ár. Árið 2015 varð hún staðgengill forstöðuhjúkrunarfræðings geðdeildar og árið 2021 tók hún við starfi aðstoðardeildarstjóra. Hún var einnig aðstoðarmaður gæðastjóra SAk á árunum 2018–2023 og hefur tekið þátt í gæða- og umbótaverkefnum á sjúkrahúsinu, meðal annars við innleiðingu nýrrar þjónustu og uppbyggingu teyma sem sinna öryggismálum.

Valborg lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2010 og diplómanámi í heilbrigðisvísindum frá sama skóla með áherslu á stjórnun í heilbrigðisþjónustu. Árið 2022 lauk hún meistaranámi í mannauðsstjórnun og skipulagsfræðum (Master in HR & Organization) við Rome Business School og Universidad Internacional de Valencia. Hún hefur einnig sótt sér símenntun í geðhjúkrun og stjórnun, meðal annars á sviði samskipta, teymisvinnu og stöðugra umbóta.

„Það er mér mikill heiður að taka við starfi deildarstjóra geðdeildar. Ég hlakka til að vinna með starfsfólki deildarinnar að því að efla þjónustuna og stuðla að góðu starfsumhverfi. Ég vil byggja á þeim góða grunni sem þegar hefur verið lagður og leggja áherslu á fagmennsku og samvinnu til að efla enn frekar gæði og öryggi þjónustunnar.“ segir Valborg á heimasíðu SAk.

„Sjúkrahúsið á Akureyri færir Bernard Hendrik Gerritsma hlýjar þakkir fyrir þriggja áratugalangt starf í þágu geðdeildarinnar og óskar jafnframt Valborgu velfarnaðar í nýju hlutverki,“ segir á vef SAk.

Tengdar greinar

Uppfært: 26. nóvember 2026