MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Fólk

Valdís Ösp lauk sérfræðinámi í bráðahjúkrun

Eftir Ingólfur Stefánsson·
db7519c4-e410-4379-aa31-ffcf110ebf40
kaffid.is

Valdís Ösp Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Sjúkrahússins á Akureyri, lauk sérfræðinámi í bráðahjúkrun í júní 2026 og hefur hlotið sérfræðileyfi á því sviði. Hún er nú annar tveggja hjúkrunarfræðinga með sérfræðileyfi í bráðahjúkrun sem starfa nú á bráðamóttöku SAk og sá þriðji á sjúkrahúsinu. Þetta kemur fram á vef Sjúkrahússins á Akureyri í dag.

„Mér finnst þetta mikilvægur áfangi, bæði faglega og persónulega. Ég vona að aukin sérhæfing mín nýtist bæði skjólstæðingum og samstarfsfólki og stuðli að áframhaldandi þróun á sviði bráðahjúkrunar,“ segir Valdís Ösp á sak.is.

„Sérfræðileyfið er viðurkenning á víðtækri menntun, reynslu og sérhæfðri þekkingu Valdísar á sviði bráðahjúkrunar,“ segir á vef Sjúkrahússins á Akureyri.

Tengdar greinar

Uppfært: 16. október 2026