Stjórnmálaflokkurinn Viðreisn mun bjóða fram lista fyrir sveitarstjórnarkosningar á Akureyri í fyrsta sinn í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu Viðreisnar þar sem segir að framboðið marki tímamót hjá flokknum og sé liður í því að efla starf Viðreisnar á landsbyggðinni.
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir er formaður Viðreisnar á Akureyri. „Við erum gríðarlega spennt fyrir komandi mánuðum og teljum Viðreisn eiga fullt erindi inn í sveitarstjórnarkosningar,“ segir Lovísa.
„Akureyrarbær, brátt svæðisborgin Akureyri er sveitarfélag sem er í góðum vexti, er vel rekið og íbúar leggja daglega hönd á plóg við að viðhalda góðu samfélagi. Við í Viðreisn höfum síðustu mánuði fundið fyrir miklum meðbyr með framboði og stefnum að því að stilla upp fjölbreyttum lista mannaðann af einstaklingum með ólíka reynslu, sem eru tilbúnir til þess að starfa fyrir sveitarfélagið af hjarta og sál með jákvæðu og lausnamiðuðu hugarfari. ”
Hún bætir við að kjarninn í stefnu Viðreisnar á Akureyri verði fagmennska, gagnsæi og framsýni: „Við viljum efla nýsköpun í bænum enn frekar, nýta mannauð bæjarins vel, auka aðgengi íbúa að upplýsingum og tryggja að ákvarðanir séu teknar á málefnalegum forsendum. Akureyri á allt undir að framtíðarsýnin sé skýr og samtalið sé alltaf í gangi.“
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband með tölvupósti á netfangið akureyri@vidreisn.is


COMMENTS