Félagskonur í Kvenfélagi Hríseyjar stóðu fyrir Vinakaffi síðastliðinn þriðjudag, 7. október, í tilefni að Viku einmannaleikans. Greint er frá á vef Hríseyjar þar sem segir að salurinn í Hlein hafi verið fullur af lífi og fjöri og að á fimmta tug eyjaskeggja hafi komið saman og notið samverunnar.
„Börnin spiluðu og skemmtu sér, sum þeirra fóru fljótlega út í góða veðrið að leika sér. Á meðan sátu þeir fullorðnu og spjölluðu saman og nutu þess að hittast og borða góðar veitingar. Það var sönn ánægja að sjá hversu margir lögðu leið sína á viðburðinn – slíkar samverustundir minna okkur á mikilvægi þess að hittast, hlæja saman og styrkja tengslin í samfélaginu. Það er aldrei að vita nema við endurtökum leikinn einhvertíman,“ sagði Dröfn Teitsdóttir, gjaldkeri félagsins.
Í gær blöstu svo bleikar slaufur við Hríseyingum sem kvenfélagskonur voru búnar að hengja á ljósastaura víðsvegar um þorpið. Slaufurnar eru seldar í Centro á Akureyri og rennur upphæðin óskipt til Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis.
„Í tilefni af Bleikum október vildum við sýna stuðning í verki og lífga upp á umhverfið í leiðinni með þessum fallegu bleiku slaufum. Við settum eina slaufu í hverja götu og vonum að fleiri fyrirtæki og félög á svæðinu kaupi einnig slaufu og taki þátt í þessu frábæra framtaki,“ sagði Dröfn enn fremur.
Hér má sjá myndir frá vinakaffinu og af bleiku slaufunum fengnar af vef Hríseyjar.















COMMENTS