Prenthaus

Hamrarnir auglýsa eftir leikmönnum á Facebook

Karen Nóadóttir þjálfar Hamrana

1.deildarlið Hamranna á í vandræðum með að ná í lið fyrir næsta leik liðsins sem er gegn Sindra í Boganum á morgun. Eins og fjallað hefur verið um neitar KSÍ að fresta leiknum þrátt fyrir að hafa áður gefið út að tekið væri tillit til þeirra sem ætluðu sér að fylgjast með EM í Hollandi en ástæða þess að Hamrarnir ná ekki í lið er sú að stór hluti liðsins er út í Hollandi að styðja íslenska kvennalandsliðið.

Stjórn Hamranna deyr ekki ráðalaus og í morgun ákvað Karen Nóadóttir, þjálfari liðsins, að reyna á mátt Facebook þar sem hún auglýsir eftir leikmönnum sem eru tilbúnir að hjálpa Hömrunum.

,,Við höfum með bellibrögðum og fögrum loforðum um hitt og þetta (þó ekki peninga, því ekki eigum við þá til) náð að púsla saman myndarlegu liði. Fullur hópur skipar 18 leikmenn og ýmsa hjálparsveina. Eftir standa því nokkur auð og óskipuð sæti leikmanna og a.m.k. 4 sæti liðstjórnar.

Eins og þið þarna úti, sem þekkið okkur svo vel, vitið þá er rekstur félagsins alfarið á herðum leikmannanna sjálfra. Okkur datt því í hug hvort ekki væri hægt bara að sameina þetta tvennt, henda í fjáröflun og fylla hópinn okkar með einhverjum stjörnum.
Hér með langar mig því að bjóða fyrrnefnd sæti til hæstbjóðanda! Einu skilyrðin eru að viðkomandi styðji Hamrana og sé skemmtilegur,“ er meðal þess sem kemur fram í færslu Karenar sem sjá má í heild sinni hér fyrir neðan.

Hamrarnir sitja í 8.sæti 1.deildarinnar og geta með sigri komist upp fyrir Sindra sem er í 7.sæti.

Sjá einnig

Hamrarnir ósáttir við KSÍ: Óvíst hvort þær nái í lið á laugardag

UMMÆLI