16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi hefst í dag

Alþjóðlegt 16 daga átak Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi hefst í dag 25. nóvember.

Alþjóðlegt 16 daga átak Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi hefst í dag 25. nóvember.

Alþjóðlegt 16 daga átak Sameinuðu þjóðanna gegn kynbundnu ofbeldi hefst í dag 25. nóvember. Á Akureyri standa Zontaklúbbarnirá Akureyri fyrir ljósagöngu sem leggur af stað frá Akureyrarkirkju klukkan 17 í dag. Gengið verður niður á Ráðhústorg þar sem sem göngufólk tekur höndum saman gegn ofbeldi.

Dagskrá 16 daga átaksins á Akureyri.
 

Þriðjudagur 29. nóvember frá kl. 12–13.

„Umfjöllun um kynferðisbrot – hvar liggja mörk fjölmiðla?“ Þórunn Elísabet Bogadóttir aðstoðarritstjóri Kjarnans veltir fyrir sér hvar mörk fjölmiðla liggja þegar fréttir eru fluttar af kynferðisofbeldismálum og ræðir við áheyrendur um efnið. Fyrirlesturinn er í anddyri Borga við Norðurslóð á Akureyri.

Miðvikudagur 7. desember 17–20.30.

Opið hús hjá Aflinu Gamla spítalanum Aðalstræti 14 Akureyri. Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, býður heim og kynnir starfsemi sína. Flutt verða erindi, söng- og tónlistaratriði. Opna húsið er í Gamla spítalanum Aðalstræti 14 Akureyri.

Fimmtudagur 8. desember frá kl. 12–13.

Úttekt á verkferlum í kynferðisbrotamálum. María Rut Kristinsdóttir sérfræðingur í Innanríkisráðuneytinu flytur erindi þar sem hún fer yfir greiningu á bættum verkferlum í kringum nauðgunarmál í réttarvörslukerfinu. Fyrirlesturinn er er í anddyri Borga við Norðurslóð á Akureyri.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó