50 sjálfboðaliðar sóttu jólaboð Öldrunarheimila Akureyrar

Jólaboðið var vel sótt af sjálfboðaliðum. Mynd: heimasíða ÖA.

Um 50 manns mættu á árlegt jólaboð fyrir sjálfboðaliða Öldrunarheimila Akureyrar og nutu dýrindis máltíðar sem starfsfólk í eldhúsinu á Hlíð töfraði fram.

Á hverjum degi allan ársins hring koma sjálfboðaliðar í heimsókn á öldrunarheimilin, tengjast og virkja íbúana og opna þannig dyr út í samfélagið. Þeirra óeigingjarna sjálfboðaliðastarf er mikils metið og er jólaboðið þakklætisvottur frá Öldrunarheimilunum. Sjálfboðaliðarnir eru virkir þátttakendur í starfi ÖA. Þeir aðstoða við þátttöku í ýmsum viðburðum, taka þátt í bakstri, hitta og spjalla við íbúana, syngja og dansa.

Samskipti og tengsl eru mikilvægir þættir til að fyrirbyggja og rjúfa einmanaleika. Að upplifa einmanaleika getur haft áhrif á heilsu og lífsgæði og því er mikilvægt að viðhalda nánum tengslum og vera félagslega virkur. Þar leggja sjálfboðaliðarnir sín lóð á vogarskálarnar svo um munar.

 

Sambíó

UMMÆLI