Heimurinn er fullur af tilganslausu drasli. Ég ákvað að taka saman þá 10 hluti í þessum heimi sem mér þykja tilgangslausastir.

10. Topplúgur á bílum – Þú opnar þetta max einu sinni á ári. Við búum ekki á Miami, því miður.

9. Pilsner – Rosalega vondur drykkur með engan tilgang.

8. Hljómsveitin Skálmöld – Nokkrir kátir piltar sem spila hræðilega tónlist

7. Hálstreflar – Aldrei skilið þessa flík, hef aldrei verið staddur úti og hugsað: ,,vá hvað mér er kalt á hálsinum“

6. Koffínlaust kaffi – Fáðu þér bara eithvað annað að drekka ef þú vilt ekki koffín!

5. Íslenskt vatn í flöskum – Þarfnast ekki útskýringar, við eigum öll vask og glas.

4. Gullfiskar – Gæludýr sem gera ekki neitt nema éta og deyja.

3. Power Balance böndin – Fyrir þá sem ekki muna þá eru Power Balance armbönd úr gúmmí sem allir Íslendingar áttu, bandið átti að veita orku.

2. Kvartbuxur – Við þekkjum öll buxur og stuttbuxur, það þurfti ekki að finna upp flík sem er mitt á milli. Ljótt og tilgangslaust.

1 .Mjólkurkex – Þurrt, hart og óhollt, hver er tilgangurinn?


COMMENTS