Bæði smitin á Norðurlandi eystra eru landamærasmit

Bæði smitin á Norðurlandi eystra eru landamærasmit

Tvö Covid-19 smit eru nú skráð í umdæmi Lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Bæði smitin eru landamærasmit.

Það þýðir að áfram hefur ekki greinst innanlandssmit á svæðinu sem tengist ekki landamærunum síðan um mánaðarmótin nóvember-desember á síðasta ári.

Eitt smitanna er á Akureyri og eitt á Ólafsfirði. Fjórir eru skráðir í sóttkví á Norðurlandi eystra, þrír á Akureyri og einn á Ólafsfirði.

Sjá nánar: Fimm af sjö smitum reyndust ekki vera á Norðurlandi eystra: „Stöðugar uppfærslur og greiningar“


UMMÆLI

Sambíó