10 bestu – Guðrún Veturliðadóttir

10 bestu – Guðrún Veturliðadóttir

Guðrún Veturliðadóttir er gestur Ásgeirs Ólafs í nýjasta þætti hlaðvarpsins 10 bestu. Hlustaðu á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

„Guðrún Veturliðadóttir ólst upp fyrir vestan og austan land.Hún flutti til Dublin og er að nema þar tónlistarupptöku og tæknistjórn en Covid sendi hana heim í fjarnám. (Music production). Hún starfar fyrir Menningarfélag Akureyrar (MAK) og hefur tæknað nokkur stór verk fyrir SinfoniaNord sem er orðin heimsþekkt fyrir Hollywood upptökur á hinum ýmsu kvikmyndum. Það er eitthvað spennandi á leiðinni í loftið frá henni en það var sama hvað ég gekk á hana, þá mátti lítið gefa upp. Mögulega getur þú gruflað það upp.Guðrún fékk örlagaríkt símtal frá pabba sínum sem breytti stefnu hennar þegar hún hafði ráðið sig í vinnu á tjaldsvæði á Seyðisfirði. Eftir það símtal er hún í raun að elta drauminn.“Bara meiri músík“ svarar hún ítrekað þegar hún fær spurninguna hvað sé framundan.Hún lifir og hrærist í tónlist og vinnur líka rauðu dagana. Tekur sér lítið frí. Þessi unga kona á eftir að ná langt.Mundu bara nafnið. Guðrún Veturliðadóttir,“ segir Ásgeir.

Hlaðvörp á Kaffinu eru tekin upp í Podcast Stúdíói Akureyrar

Sambíó

UMMÆLI