Knattspyrnumaðurinn Birkir Bjarnason er einn af þeim sem hefur fjárfest í Skógarböðunum sem stefnt er á að opna við Akureyri á næsta ári. Birkir á félagið Bjarnason Holding sem fer með um 13 prósent hlut í Skógarböðunum. Þetta kemur fram í Viðskiptamogganum í dag.
Sjá einnig: Áætlað að Skógarböðin við Akureyri opni í byrjun næsta árs
Áætlað er að Skógarböðin opni við Akureyri þann 11. febrúar á næsta ári. Framkvæmdir hófust við Skógarböðin í október á síðasta ári en stærstu eigendur eru hjónin Finnur Aðalbjörnsson og Sigríður María Hammer. Fyrirtækið Skógarböð ehf. stendur að framkvæmdinni og mun fyrirtæki þeirra hjóna, N10b ehf. fara með 51 prósent hlut í fyrirtækinu.
Sigríður María segir í samtali við Viðskiptamoggann í dag að allt hafi gengið eftir áætlun en þó hafi reynst erfitt að ná í efni vegna kórónuveirunnar. Það taki lengri tíma en áður að útvega efni í glugga, hurðar og fleira. Framkvæmdir hófust af fullum krafti á ný í gær eftir þriggja vikna sumarfrí.
UMMÆLI