Stefnt er að því að hefja bólusetningar barna, 5 til 11 ára, á Norðurlandi um miðja næstu viku. Heilsugæslustöðin og aðgerðastjórn vinna saman að verkefninu en horfið hefur verið frá því að bólusetja í skólum og þess í stað ákveðið að nýta aðstöðu á slökkvistöð þar sem bólusetningar hafa farið fram hingað til og hefur reynst vel.
Byrjað verður á að bólusetja grunnskólabörn og í framhaldi af því leikskólabörn. Allir sem að verkefninu koma eru nú að undirbúa framkvæmd bólusetninganna til að allt gangi eins vel og hægt er. Lögð er áhersla á öryggi, trúnað og að upplifun barnanna verði góð.
Heilsugæslan skipuleggur fyrirkomulag bólusetninganna og eru skólahjúkrunarfræðingar þar í lykilhlutverki. Læknir og sjúkraflutningamenn verða líka á bólusetningastað.
Foreldrar sem fara með forsjá barns og deila með því lögheimili þurfa að skrá barn sitt í bólusetninguna. Hlekkur á skráningarsíðu er væntanlegur á HSN.is.
Þar er hægt að:
- skrá barn sitt í bólusetningu
- skrá aðra aðila sem heimilt er að fylgja barninu í bólusetningu
- hafna/bíða með bólusetningu
Þegar barn hefur verið skráð í bólusetningu er sent strikamerki með SMS skilaboðum. Það er á ábyrgð forsjáraðila að senda strikamerkið áfram ef það vill að einhver annar fylgi barninu í bólusetningu. Það að sýna strikamerki á bólusetningastað er því ígildi samþykkis.
Forsjáraðilar barna á þessum aldri sem ekki nota Heilsuveru munu geta skráð barn sitt í bólusetningu á bolusetning.covid.is.(ekki tilbúið en hlekkur kemur hér inn fljótlega)
Upplýsingar verða uppfærðar á vef Heilbrigðisstofnunnar Norðurlands eftir því sem þær liggja fyrir.
UMMÆLI