Banaslys á Akureyri

Banaslys á Akureyri

Alvarlegt umferðarslys varð í miðbæ Akureyrar í gær þriðjudag þar sem ekið var á gangandi vegfaranda. Vegfarandinn var karlmaður á áttræðisaldri og lést hann af áverkum sínum á Sjúkrahúsi Akureyrar síðdegis í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar.

Sjá einnig: Ekið á gangandi vegfaranda á Akureyri

Vegfarandinn var að ganga yfir götu þegar ekið var á hann. Málið er í rannsókn hjá Lögreglustjóranum á Norðurlandi eystra.

COMMENTS