Akureyrarbær blæs til fjölskylduleiks í tilefni Evrópsku Samgönguvikunnar – Lýðheilsukort í vinning

Akureyrarbær blæs til fjölskylduleiks í tilefni Evrópsku Samgönguvikunnar – Lýðheilsukort í vinning

Evrópska Samgönguvikan fer fram dagana 16.–22. september og Akureyrarbær hvetur fjölskyldur til að taka þátt í skemmtilegum leik. Þátttakendur geta unnið lýðheilsukort fyrir alla fjölskylduna auk fjölda aukavinninga.

Það sem þið þurfið að gera til að eiga möguleika á vinningi:

  • Safna stigum með því að leysa fjölbreytt verkefni sem tengjast hreyfingu og útivist.
  • Senda inn stigafjölda og mynd af fjölskyldunni í skemmtilegri útivist á netfangið samgonguvika@akureyri.is.

Allar fjölskyldur sem taka þátt fara í happdrættispott – dregið þriðjudaginn 23. september. Hægt er að leysa hvert verkefni eins oft og hver vill – því oftar, því betra! Nánari upplýsingar á akureyri.is.

Prenta leikinn út hér

COMMENTS