Norðurorka varar við svikapósti

Norðurorka varar við svikapósti

Norðurorka vekur athygli á svikapósti með fyrirsögninni Val á raforkusala, þar sem tilkynnt er um ógreiddan rafmagnsreikning. Í framhaldinu er viðtakanda boðið að smella á greiðslusíðu og slá inn kóða sem fylgir póstinum til að ganga frá greiðslu.

Á vef Norðurorku segir að svikapóstinn megi m.a. þekkja á því að hann ber ekki merki neins raforkusala. Auk þess sem söluaðilaskipti snúast einungis um að velja raforkusala, þau tengjast ekki greiðslu reikninga eða skuldastöðu.

Hér að neðan eru leiðbeiningar af vef Norðurorku:

Ef þú fékkst grunsamlegan tölvupóst:

  • Ekki smella á hlekki eða opna viðhengi
  • Ekki slá inn kóða
  • Ekki gefa upp persónuupplýsingar eða greiðslukortaupplýsingar
  • Eyddu póstinum strax

Viðskiptavinir geta séð stöðu reikninga sinna á mínum síðum og hvort þeir séu ógreiddir. Norðurorka lokar einungis fyrir rafmagnið þegar margar viðvaranir hafa verið sendar um ógreidda reikninga.

Hvað átt þú að gera ef þú lendir í svikum?

Ef þú smelltir á hlekk og slóst inn kóða, gafst upp kortanúmer, aðrar bankaupplýsingar eða leyfðir innskráningu með rafrænum skilríkjum þá skaltu gera þetta strax:

  • Frysta öll greiðslukort í bankaappinu þínu
  • Skrá út öll innskráð tæki í bankaappinu
  • Hringja strax í neyðarþjónustu bankans þíns

Svikapósturinn gæti litið svona út:

Á vef Norðurorku er minnt á að Fallorka mun hætta sölu raforku um áramótin. Mikilvægt er að viðskiptavinir Fallorku finni sér nýjan raforkusala fyrir 10. desember.

Nánar: Orkusalan tekur við sölu á rafmagni af Fallorku

COMMENTS