Velferðarráð Akureyrarbæjar framlengir umsóknarfrest á styrkjumMynd: Akureyri.is

Velferðarráð Akureyrarbæjar framlengir umsóknarfrest á styrkjum

Velferðarráð Akureyrarbæjar úthlutar styrkjum til starfsemi og þjónustu, sem fellur að hlutverkum þess, einu sinni á ári. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til sunnudagsins 23. nóvember. Þetta kemur fram á vef bæjarins.

Velferðarráð stýrir fjölbreyttri velferðarþjónustu á vegum Akureyrarbæjar. Styrkir eru m.a. veittir til félagasamtaka og einstaklinga sem starfa á sviði félagsþjónustu.

Umsækjendur eru beðnir að kynna sér reglur Akureyrarbæjar um styrkveitingar svo og samþykkt ráðsins um markmið og vinnulag.

Sótt er um styrkinn á þjónustugátt Akureyrarbæjar

COMMENTS