Tónlistarskólinn á Akureyri fagnar 80 ára afmæli á árinu og nóg verður um að vera í skólanum að því tilefni. Afmælisfögnuður skólans hefst með opnu húsi í Hofi laugardaginn 7. febrúar næstkomandi.
Dagurinn byrjar með opnum smiðjum á milli klukkan 11 og 12. Þá verður einnig hægt að ganga um skólarýmið og skoða skólann. Mögulega hittast fyrir kennarar og annað starfsfólk á göngunum sem eru meira en til í að spjalla og svara þeim spurningum sem vakna.
Formleg setning verður svo á milli klukkan 12 og 13. Þá verður boðið upp á tónlistaratriði, ræður og köku. Frá klukkan 13 til 15 verða síðan stuttir tónleikar í þrem mismunandi rýmum.
Dagskrána má sjá hér:
Opnar smiðjur 11-12
11:00 Stofa 357 og hljóðver 3. Hæð – Electrosmiðja – 1 klst.
11:00 Black box/jarðhæð – Trommuhringur með Rodrigo – Lopes 1 klst
11:00 Bókasafn 3. Hæð – Lita & hlusta – 1 klst
11:00 Dynheimar 2. Hæð – Litlubarnadans – 30 mín
11:30 Lundur 2. Hæð – Fiðlukynning – 30 min
11:30 Hamrar – Söngsalur með söngkennurum – 30 min
Hægt er að ganga um skólann og skoða, starfsfólk á sveimi sem eru mjög viljug að svara spurningum
Setning afmælisárs 12:15 – 13:45
Ræður, tónlistaratriði og auðvitað kaka !
Opnir tónleikar 13-15
13:00 Blásarasveitir í Nausti
13:20 Klassísk söngdeild í Hömrum
13:40 Ritmískar hljómsveitir í Black boxi
14:00 Strengjasveitir í Nausti
14:20 Píanó og gítar í Hömrum
14:40 Rytmísk söngdeild í Black boxi
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!


COMMENTS