Á þessu misseri er skólastarf framhalds- og háskóla með óhefðbundnum hætti. Ekki allir hafa aðgang að kennslu innan veggja skólastofnana og stunda nám sitt með rafrænum hætti.
Háskólinn á Akureyri hefur áralanga reynslu í miðlun rafrænnar kennslu. Sérfræðingar HA hafa nú tekið saman 10 góð ráð fyrir nemendur í þessum aðstæðum sem má skoða hér að neðan.
Nánar má lesa um áskoranir, tækifæri og lausnir í rafrænni kennslu í frétt frá Háskólanum á Akureyri.
- Áætlaðu ákveðinn tíma sem ætlaður er lærdómi.
- Komdu þér upp góðri lærdómsaðstöðu.
- Taktu stutt hlé, þess á milli er slökkt á allri truflun.
- Skilgreindu hvað á að læra.
- Skiptu milli verkefna því fjölbreytni eykur úthald.
- Áætlaðu tímann fyrir hvert verkefni.
- Forgangsraðaðu eftir mikilvægi.
- Haltu uppi samskiptum við lærdómsfélaga þína og nýttu tæknina.
- Mættu og taktu virkan þátt í þeim kennslustundum sem eru á dagskrá hverju sinni. Hvort sem þær eru rafrænar eða í kennslustofu.
- Samþykktu sjálfan þig og tilfinningar þínar. Gerðu eitthvað sem gleður þig eða fær þig til að líða vel.
UMMÆLI