MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Aðalsteinn Þórsson sýnir í Leyni

Eftir Ingólfur Stefánsson·
6ad8899ab2c83
kaffid.is

Myndlistarmaðurinn Aðalsteinn Þórsson sýnir málverk og teikningar á Leyni Hafnarstræti 95 á Akureyri. Myndirnar eiga það sameiginlegt að vera af höfðum manna eða vætta, Þær eru frá ýmsum tímum á ferli hanns og eru ólíkar í efnistökum og aðferðum allt frá olíulitum, akríl, bleki, gouache og viðarkoli á pappír eða hördúk. Elsta myndin er frá aldamótum en sú yngsta var kláruð núna á vordögum.

Segja má að teikning og málun hafi undan farin ár verið nokkurskonar hliðargrein í sköpun Aðalsteins. Engu að síður er hér um graf alvarlega hliðargrein að ræða. „Allt byrjaði þetta með línu á blaði og hvað heillar mannshugan meir en aldlit hinns? Við erum bara þannig tengd, við getum ekki annað. Frá okkar fyrstu tengslum við andliti móðurinnar sem hvítvoðungar halda þau áfram í gegn um lífið bæði til góðs og ills, alltaf erum við að lesa í andlit hinns og látbragð“ segir Aðalsteinn.

Hér getur að líta hefðbundin portrett – andlismyndir og myndir af hausum úr hugarheimi listamannsins. Fæst verkanna hafa verið sýnd áður í efninu þó einhver hafa líklega sést á samfélagsmiðlum.

Aðalsteinn úskrifaðist frá Myndlistardeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 1993. Hann lauk Masters námi í frjálsri myndlist frá The Dutch Art Institute (þá AKI2) í borginni Enschede í Hollandi 1998. Síðan 2016 hefur hann verið starfandi myndlistarmaður á stór Eyjafjarðarsvæðinu. Helsta verkefnið Aðalsteins er Einkasafnið í Eyjafjarðarsveit þar sem hann safnar afgöngum lífs síns.

Aðalsteinn hefur verið áberandi í sýningarhaldi undanfarið og hér er upptalning á sýningum þessa árs sem hann hefur haldið eða tekið tekið þátt í: Kattahverfið, duó sýning ásamt Örnu Valsdóttur, Deiglan Akureyri. Hédna, samsýning félaga í Myndlistarfélaginu í Hofi. Heimalingar 26, útilistasýning við Dyngjuna – listhús í Eyjafjarðarsveit. Liðssafnaður – málamiðlun, Fræðasetur um forystufé í Þistilfirði og samsýningin Rúllandi snjóbolti 19, í samtímalistasafninu Ars Longa á Djúpavogi.

Sýningin opnar klukkan átta e.h. 22 október og stendur til 1. nóvember. Hún er opin á opnunartímum kaffihússins og er ókeypis inn. Öll verkin eru til sölu.

https://steini.art/ er vefsíða Aðalsteins

Tengdar greinar

Uppfært: 29. október 2026