Prenthaus

Akureyrarbær og Húni II taka höndum saman

Í gær, miðvikudaginn 4. apríl, var undirritaður nýr samstarfssamningur Akureyrarbæjar og Hollvinafélags Húna II sem gildir til ársins 2020. Markmið Akureyrarbæjar með samningnum er að styðja við starf félagsins með framlagi til siglinga og verkefna í þágu bæjarbúa. Um leið gerir samningurinn Hollvinafélaginu betur kleift að standa undir rekstri eikarbátsins og halda honum við.
Árið 2018 er tileinkað menningararfi um alla Evrópu og á Íslandi er áhersla lögð á strandmenningu. Það er því afar ánægjulegt og vel við hæfi að nú sé skrifað undir þennan samning því Húni II hefur um árabil verið notaður til að fræða jafnt unga sem aldna um strandmenningu þjóðarinnar.

Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri og Hjörleifur Einarsson formaður Hollvina Húna II undirrituðu samninginn um borð í Húna II í gær.

Verkefnin sem falla undir samninginn eru fræðsluferðir fyrir nemendur 6. bekkja grunnskóla bæjarins, skemmtisiglingar á sjómannadaginn, þjóðhátíðardaginn, um verslunarmannahelgina og á Akureyrarvöku, einnig sérstök skemmtisigling fyrir eldri borgara. Í tilefni af Evrópumenningararfsárinu 2018 bjóða Hollvinir Húna II að auki upp á ókeypis siglingar fyrir almenning en ferðirnar tengjast strandmenningu sem er sem áður segir þema ársins á Íslandi. Loks tekur Húni II þátt í tilraunaverkefninu „Að míga í saltan sjó“ í samvinnu við Ungmennahúsið í Rósenborg en það gengur út á að bjóða ungmennum sem hafa verið í félagslegum vanda að taka þátt í lífinu um borð og fræðast.
Við undirritun samningsins sagði Hjörleifur Einarsson formaður Hollvinafélags Húna II meðal annars: „Þetta er stór dagur hjá okkur Hollvinum því með þessum samningi er tryggður grunnur að starfsemi félagsins næstu árin. Þetta er einnig viðurkenning á starfi okkar síðustu árin. Með þessum samningi brýtur Akureyrarbær blað í sögu bátaverndar og strandmenningar á Íslandi. Því þetta er fyrsti samningur af þessum toga, þ.e.a.s. sem tryggir verkefni fyrir bát sem vert er að vernda, því besta bátaverndin er að halda bátum lifandi og sjóhæfum.“
Sambíó

UMMÆLI

Sambíó