Akureyri tekur þátt í samgönguvikunni

Akureyri tekur þátt í samgönguvikunni

Evrópska samgönguvikan hefst á morgun, fimmtudag. Yfirskrift vikunnar í ár er Veljum grænu leiðina – fyrir umhverfið og heilsuna. Akureyrarbær tekur þátt og eru íbúar sveitarfélagsins hvattir til að skilja bílinn eftir heima og nota í staðinn umhverfisvæna og heilsusamlega samgöngumáta. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Frá árinu 2002 hafa bæir og borgir víða um Evrópu tekið þátt í sameiginlegu átaki vikuna 16.-22. september. Markmiðið er að kynna íbúum í þéttbýli samgöngumáta sem eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfi og andrúmsloft.

Vikan hefst á Degi íslenskrar náttúru, 16. september, og lýkur á bíllausa deginum 22. september.

Akureyringar eru hvattir til að deila á samfélagsmiðlum mynd af sér á vistvænni og heilsusamlegri ferð með myllumerkinu #samgönguvika eða #mobilityweek.

Í tilefni vikunnar er hægt að taka könnun og komast að því hvaða samgöngur henta þér bestSmelltu hér til að opna könnunina Hvaða samgöngukrútt ert þú? 

Sambíó

UMMÆLI