MAK
Leyni
Höldur
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Sparisjóðirnir
Menning

Alþjóðleg dansvídeóhátíð í Listagilinu

Eftir Hákon Orri Gunnarsson·
Listasafnidh
kaffid.is

Boreal Screendance Festival er alþjóðleg dansvídeóhátíð sem haldin er á Akureyri dagana 23. október – 15. nóvember. Fyrsta hátíðin fór fram í Mjólkurbúðinni í nóvember 2020, nú fer hún fram um allt Listagilið.

„Með Boreal skapast vettvangur til kynningar á dansvídeóum, með það að markmiði að leiða saman innlent og erlent listafólk, byggja brýr heimsálfa á milli og hvetja til samstarfs.“ segir á vef Listasafnsins.

Á hátíðinni eru sýnd dansvídeó alls staðar að úr heiminum. Verkin eru sýnd á breiðtjöldum, þeim varpað á veggi, glugga og fleiri fleti sýningarrýma. Sérstaða Boreal er fólgin í innsetningum sem settar eru upp í kringum sum verkin og veita þeim í senn meiri dýpt og nýja vídd.

Hátíðin stendur einnig fyrir fjölbreyttum danstengdum viðburðum og samkomum á sýningartímanum. Frítt er inn á alla viðburði.

Alþjóðleg dansvídeóhátíð í Listagilinu

Tengdar greinar

Uppfært: 15. október 2026