Antje og Jón hlutu Grænu kennsluverðlaun HA

Antje og Jón hlutu Grænu kennsluverðlaun HA

Umhverfisráð Háskólans á Akureyri veitti Grænu kennsluverðlaunin í fjórða skipti fyrir árið 2024. Verðlaunin eru veitt kennurum sem hafa tvinnað umhverfisvernd inn í námskeið sín. Antje Neuman, dósent við Lagadeild HA og Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Viðskiptadeild HA hlutu verðlaunin fyrir árið 2024.

Antje hlýtur kennsluverðlaunin fyrir námskeið í Heimskautarétti. Antje er með doktorsgráðu frá Tilburg háskóla í Hollandi og er í dag búsett á Akureyri. Antje hefur í sínum störfum og rannsóknum lagt áherslu á réttindi frumbyggja á norðurslóðum og náttúruvernd á heimskautasvæðum.

Jón Þorvaldur Heiðarson hlaut verðlaunin fyrir kennslu í umhverfis- og orkumálum í námskeiðinu Stjórnun og rekstur sveitarfélaga.

Jón Þorvaldur hefur verið virkur í umræðum og rannsóknum í byggðamálum. Hans helsta sérsvið eru samgöngur, einkum vegsamgöngur en hann hefur einnig verið virkur á sviði grænnar orku og á fleiri sviðum. Jón Þorvaldur er með bakkalárspróf í eðlisfræði og meistarapróf í hagfræði.

Audrey Louise Matthews, formaður Umhverfisráðsins, afhenti verðlaunin fyrir hönd ráðsins.

„Við lítum á Grænu kennsluverðlaunin sem jákvæða hvatningu til kennara til að tengja sjálfbærni við allt okkar umhverfi. Þetta eru kennarar sem með metnaði sínum ná með sinni vísindalegu sérfræðiþekkingu að tengja næstu kynslóðir við þeirra skuldbindingu við umhverfið,“ segir Audrey.

COMMENTS