Átta stéttarfélög í Eyjafirði afhentu styrk uppá 2,5 milljónir

Á myndinni eru forsvarsmenn nokkurra stéttarfélaga sem veittu styrkinn og félaganna fjögurra sem hann fengu.

Á myndinni eru forsvarsmenn nokkurra stéttarfélaga sem veittu styrkinn og félaganna fjögurra sem hann fengu.

Átta stéttarfélög í Eyjafirði afhentu fyrr í dag, fimmtudaginn 22. desember, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Rauða krossinum styrk að upphæð kr. 2.500.000.

Styrkurinn er notaður í samstarfsverkefni þessara fjögurra samtaka sem var sett á laggirnar til að einfalda málið til að sækja um aðstoð fyrir jólin, en nú þarf einungis að sækja um á einum stað. Rétt er að vekja athygli á því að þessir aðilar aðstoða fólk um allan Eyjafjörð, frá Siglufirði að Grenivík.

Þetta er í fimmta sinn sem þessi samtök taka höndum saman fyrir jólin og veita þeim aðstoð sem þurfa. Í ár var úthlutað svipuðum fjölda korta og á síðasta ári. Þegar styrkurinn var afhentur kom m.a. að aukning væri að ungir karlmenn þyrftu að sækja í mataraðstoðina fyrir jólin og yfirleitt vegna gríðarlega hárrar húsaleigu.

Félögin átta sem færðu nefndinni styrk eru Eining-Iðja, Byggiðn – Félag byggingamanna, Félag málmiðnaðarmanna Akureyri, Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri og nágrenni, Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Sjómannafélag Eyjafjarðar, Sjómannafélag Ólafsfjarðar og Berg félag stjórnenda.

Ef einhverjir fleiri vilja leggja átakinu lið þá er hægt að leggja inn á reikning verkefnisins, (0302-13-175063, kt. 460577-0209) Munið, margt smátt gerir eitt stórt.

UMMÆLI

Sambíó