Auglýst eftir framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni

Eyrarrósin

Eyrarrósin

Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík hafa allt frá árinu 2005 staðið sameiginlega að Eyrarrósinni; viðurkenningu fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni. Markmið viðurkenningarinnar er að beina sjónum að og hvetja til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista.

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir fyrir Eyrarrósina 2017. Umsækjendur geta meðal annars verið stofnun, tímabundið verkefni, safn eða menningarhátíð utan höfuðborgarsvæðisins.

Af umsækjendum verða sex verkefni valin á Eyrarrósarlistann og af þeim hljóta þrjú verkefni tilnefningu til sjálfrar Eyrarrósarinnar. Eitt þeirra hlýtur Eyrarrósina 2017, en henni fylgja 2.000.000 kr. peningaverðlaun. Öðrum tilnefningum fylgja einnig peningaverðlaun.

Umsóknarfrestur er til miðnættis 15. janúar 2017. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir skal senda rafrænt til Listahátíðar í Reykjavík á netfangið eyrarros@artfest.is

Nánari upplýsingar fyrir umsækjendur, þar með talinn listi yfir nauðsynleg fylgigögn umsókna má nálgast á heimasíðu Listahátíðar: www.listahatid.is/eyrarrosin. Verndari Eyrarrósarinnar er Eliza Reid, forsetafrú.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó