Bæjarstjórn Akureyrar gerir alvarlegar athugasemdir við fjárlagafrumvarpið

Akureyri

Akureyri

Bæjarstjórn Akureyrar gerði á fundi sínum í gær alvarlegar athugasemdir við frumvarp til fjárlaga 2017 og furðar sig á því að þar sé ekki tekið tillit til nýrrar samgönguáætlunar. Einnig fjallaði bæjarstjórn um stöðu orkumála í Eyjafirði en að öllu óbreyttu gæti skapast neyðarástand á því sviði á næstu árum.

Í bókun segir meðal annars:

„Ekki er gert ráð fyrir fjármagni frá ríkinu til kaupa á nýjum hafnsögubáti fyrir Hafnasamlag Norðurlands, þrátt fyrir að nú liggi fyrir tilboð í smíði bátsins sem búið er að samþykkja og bíður undirritunar. Ekki er heldur gert ráð fyrir fjármagni til að ljúka gerð Dettifossvegar sem allir eru sammála um að sé lykilframkvæmd í uppbyggingu innviða fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi eystra. Þá er heldur ekki gert ráð fyrir fjármagni til að ljúka gerð flughlaðs við Akureyrarflugvöll sem er mikilvægt verkefni vegna flugöryggis yfir Íslandi og atvinnuuppbyggingar á Akureyri“

Einnig var samþykkt bókun um stöðu orkumála á Akureyri sem fjallar um mikilvægi þess að tryggja stöðugleika raforkukerfisins á Norðausturlandi, auka afhendingaröryggi og styðja þannig eðlilegan vöxt atvinnulífs.

UMMÆLI

Sambíó