Beint flug frá Akureyri til Bretlands í vetur

Beint flug frá Akureyri til Bretlands í vetur

Í tilkynningu frá Ferðaskrifstofu Akureyrar segir skrifstofan að hafin sé sala á flugferðum beint frá Akureyrarflugvelli í samstarfi við Superbreak til Bretlands, ferðirnar eru næsta vetur en hægt er að bóka á ýmsum dagsetningum frá desember 2018 og út mars 2019.

Áfangastaðirnir eru fjórir, London, Manchester, Liverpool og York.

Ferðaskrifstofa Akureyrar býður upp á ýmsar pakkaferðir í tengslum við flugin. Þá hefur ný heimasíða verið sett á laggirnar þar sem hægt er að skoða ferðamöguleika og bóka ferðir, heimasíðan skrifstofunnar er Aktravel.is.

„Við erum búin að vera í samskiptum við Superbreak um þann möguleika að selja flugsæti frá Akureyri fyrir heimamarkað. Aðrar ferðir sem við bjóðum upp á frá Akureyri núna í haust eru helgarferðir til Dublin og Róm ásamt þessum ferðum til Bretlands. Við finnum fyrir mikilli eftirspurn frá heimafólki eftir beinum ferðum frá Akureyri og reynum að gera okkar besta í að þjónusta markaðinn með það að leiðarljósi að vera samkeppnishæf í verði.“ segir í tilkynningunni.

Super Break fjölgar flugum til Akureyrar frá Bretlandi næsta vetur

UMMÆLI