Biggi Maus: Getur gervigreind yfirhöfuð skapað tónlist?

Tónlistarmaðurinn og sálfræðingurinn Birgir Örn Steinarsson, betur þekktur sem Biggi Maus, hefur birt nýjan pistil á heimasíðu sinni þar sem hann veltir upp áleitnum spurningum um gervigreind, tónlist og eðli mannlegrar sköpunar.
Birgir opnaði nýlega heimasíðuna biggimaus.is þar sem hann býður meðal annars gestum síðunnar að spyrja sig að hverju sem er. Áhugaverðustu spurningunum svarar hann í formi pistla. Sá nýjasti er skrifaður í tilefni af spurningu lesanda um notkun gervigreindar í tónlistarsköpun.
Í pistlinum gengur Birgir lengra en að taka afstöðu til þess hvort tónlistarmenn eigi að nota gervigreind við lagasmíðar. Hann dregur í efa að tónlistarmenn sem panta lög frá gervigreind séu sjálfir að skapa.
„Sköpunin ER ferðalagið. Afhverju ætti nokkur alvöru tónlistarmaður að vilja sleppa því?"
Birgir telur þó að tilkoma gervigreindar geti haft jákvæð áhrif á þróun tónlistar og spáir því að mannleg færni og hljóðfæraleikur muni öðlast aukið vægi á næstu árum.
„Næsta kynslóð tónlistarunnenda á eftir að krefjast þess að þú getir spilað lagið læf á hljóðfæri úr tré. Afhverju ættu þau að nenna að hlusta á lag sem einhver nennti ekki að gefa sér tíma til þess að skapa?"
Pistilinn má lesa í heild sinni á https://biggimaus.is/#skopunin-er-ferdalagid
Tengdar greinar
Uppfært: 27. nóvember 2026





