Bjarney Rún opnar sig í tilfinningaþrungnu myndskeiði Stígamóta

Bjarney Rún

Bjarney Rún

Akureyringurinn Bjarney Rún Haraldsdóttir segir frá kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir í nýju fræðslu- og söfnunarátaki Stígamóta sem ber yfirskriftina „Styttum svartnættið“ og var kynnt í dag. Bjarney varð fyrir ofbeldinu þegar hún var 18 ára gömul og lýsir ofbeldinu í afar tilfinningaþrungnu viðtali sem sjá má neðst í fréttinni.

„Í dag hrindum við formlega af stað söfnunarátaki Stígamóta sem ber yfirskriftina „Styttum svartnættið“, en tíminn sem líður frá því að kynferðisbrot er framið þar til brotaþoli leitar sér aðstoðar er oft langur. Markmiðið með herferðinni er að safna mánaðarlegum styrktaraðilum að rekstri Stígamóta, en starfið er mikilvægt og við þurfum að auka þjónustuna, sem getur beinlínis snúist um að bjarga mannslífum. Söfnunin nær síðan hámarki með samnefndum þætti á Stöð 2 föstudaginn 18. nóvember.“

„Á næstu dögum munum við birta viðtöl við Stígamótafólk sem af einstöku hugrekki og æðruleysi opnar sig um erfiða reynslu fyrir alþjóð. Við erum þeim öllum innilega þakklát fyrir sitt framlag til herferðarinnar. Hér er fyrsta myndband, en það er viðtal sem við tókum við Bjarneyju Rún Haraldsdóttur,“ segir í færslu á Facebook-síðu Stígamóta.

Sambíó

UMMÆLI

Sambíó