Brautskráður stúdent í heimskautarétti gefur út bók um réttindi náttúrunnar

Brautskráður stúdent í heimskautarétti gefur út bók um réttindi náttúrunnar

Dr. Eric Rubenstein, sem útskrifaðist með meistaragráðu í heimskautarétti í vor, hefur gert samning við alþjóðlega útgáfufyrirtækið Routledge um útgáfu á nýrri bók sinni, „Legal Personhood and the Rights of Nature: Beyond Anthropocentrism.“

Bókin byggir á meistararitgerð hans í norðurslóðafræðum við Háskólann á Akureyri sem hann skrifaði undir leiðsögn Dr. Romain Chuffart, Nansen prófessors. Greint er frá á vef HA.

Hreyfingin fyrir réttindum náttúrunnar (e. Rights of Nature) leitast við að útvíkka lagaleg réttindi þess hluta náttúrunnar sem ekki er byggður af fólki, þar á meðal dýra, áa, jökla og vistkerfa. Í dag er einungis hægt að veita réttindi til lögaðila samkvæmt lögum og allt annað, þar á meðal ofantalið er ekki skilgreint sem lögaðili. Því þarf að skoða hvort náttúran geti í einhverju formi talist lögaðili ef útvíkka á lagaleg réttindi hennar. Í bókinni eru færð rök fyrir þeirri skoðun að náttúran geti í raun talist lögaðili og að í líffræði-, siðferðis- né frumspekilegum skilningi þurfi í raun engin tengsl við einstaklinga til að teljast slíkur. Einnig er að finna í bókinni fræðilega umræðu byggða á dæmum frá Pólsvæðunum.

COMMENTS